Farðu í vöruupplýsingar
1 af 3

Jógastund

Jógastund

Venjulegt verð 4.490 ISK
Venjulegt verð Söluverð 4.490 ISK
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn.

Jógastund inniheldur:

  • 50 jógastöður með útskýringum
  • 10 jógasögur með hreyfingum
  • öndunar- slökunar- og íhugunaræfingar
  • Leiki sem efla félags- og tilfinningatengsl

Jógastund hentar bæði vel fyrir fjölskyldur sem vilja hreyfa sig saman og búa til gæðastund í gegnum leik, nánd og hreyfingu sem og metnaðarfulla kennara sem vilja koma til móts við ólíka nemendur sína með fjölbreyttum kennsluháttum sem stuðla að velferð þeirra með því að kenna þeim að takast á við streitu, álag og hlúa að sjálfum sér.

Bókin inniheldur yndislegar jógastöður ásamt sögum, æfingum og leikjum. Æfingarnar og leikirnir eru aðgengileg fyrir alla, þar sem við til dæmis líkjum í sameiningu eftir dýrum og hlutum í náttúrunni, hlúum að nándinni með nuddleikjum svo úr verður hin besta samveru- og ánægjustund.

Ys og þys í nútímasamfélagi nær ekki eingöngu til okkar fullorðna fólksins heldur engu síður til barnanna okkar. Að aðstoða börnin við að finna ró og létta á álaginu með jóga er ávísun á núvitund – og dásamlega jógastund!

Jógastund inniheldur yndislegar æfingar og leiki sem hjálpa fjölskyldu og vinum að auka vellíðan og rækta líkama og sál: 50 jógastöður, jógaævintýri, öndunaræfingar, slökunaræfingar, hugleiðsluæfingar og skemmtilegir fjölskylduleikir.

Bókin er sett þannig fram að ekki er þörf á að iðkendur hafi grunn eða þekkingu á jóga heldur hafi áhuga á að kynna sér jóga, finnist gaman að hreyfa sig, rækta sálina og eiga góða samverustund með fólkinu sínu í kring. Allar stöður eru vel útskýrðar og oft eru sýndar mismunandi útfærslur af stöðunum þannig að auðvelt er að æfa sig og finna útfærslu við hæfi. Bókin er síðan fallega myndskreytt eftir Auði Ómarsdóttur.

Skoða allar upplýsingar